Blóðfitulækkandi lyf, til lífstíðar?

Spurning:

Þarf sjúklingur sem byrjar að taka blóðfitulækkandi lyf að gera það fyrir lífstíð?

Svar:

Það er oftast svo, nema miklar breytingar verði á þyngd sjúklingsins eða umhverfi. Blóðfitulyfin hafa önnur og meiri áhrif en bara að lækka kólesterólið, þau verka líka jákvætt á æðaþelið.

Árni Kristinsson, hjartalæknir