Dolvipar?

Spurning:

69 ára – Karl

Komið þið sæl.

Vegna sjúkdóma minna hef ég stundum notað lyfið Dolvipar við verkjum og hefur það reynzt mér bezt af öllum þess konar lyfjum. Fyrir skömmu kom ég til taugasérfræðings míns, sem sagði mér að lyfið hefði verið tekið af lyfjaskrá fyrir nokkrum árum, sem sýnir, að ekki hef ég ofnotað það.  Ég spurði hann, hvort það hafi verið of mikið kodein í lyfinu, en hann sagði aðeins vera 10 mg af því Hins vegar væri 25 mb phenobarbital þar á meðal, sem væri vöðvaslakandi, og það hefði orðið til að Dolvipar hefði verið tekið af markaðinum. Sérfræðingurinn gaf lítið út á það, þetta hefði komið erfiðum gigtarsjúklingum mjög til góða, og get ég bætt því við, að móðir mín heitin tók þetta einstaka sinnum inn og kallaði það kraftaverkalyf, enda sárþjáð stundum.

Því er spurningin sú, sem ég gleymdi að spyrja lækninn um: HVER ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ LYFIÐ VAR EKKI LEYFT LENGUR OG ER EITTHVAÐ LYF TIL STAÐAR, SEM INNIHELDUR PHENOBARBITALUM?

Með beztu kveðju,

Svar:

Ástæðan fyrir því að Dolvipar var tekið af markaði fyrir nokkrum árum mun hafa verið að um verulega mikla misnotkun var að ræða af lyfinu. Um leið var talið af alla vega sumum sérfræðingum að það hefði ekki nægilega kosti sem verkjastillandi lyf umfram t.d. Parkódín að það réttlætti notkun þess.

Dolvipar töflur innihéldu 400 mg af parasetamóli, en almennt innihalda verkjatöflur 500 mg af parasetamóli.

Dolkvipar töflur innihéldu 10 mg af kódeíni þannig að hærra hlutfall var af kódeíni í þeim miðað við parasetamól, en parasetamól er aðal- vekjastillandi efnið í töflunum.

Barbítúrsýran phenóbarbital er til sem sérstakt lyf eða Fenemal Recip, töflur sem fást í styrkleikunum 15 mg, 50 mg og 100 mg.

Lyfið er eingöngu skráð við flogaveiki og er lítið notað í öðrum tilgangi í dag. Phenóbarbital er eina barbitúrsýran sem er ennþá á markaði hér, enda hafa önnur lyf löngu tekið við af þeim sem svefnlyf og róandi lyf.

Dolvipar innihélt líka koffeín 50 mg. Koffeín sem er jú m.a. í kaffi og kóladrykkjum er vægt örvandi lyf og er ekki lengur á markaði hér eitt sér.

Það er hins vegar til staðar í mígrenilyfinu Anervan, sjóveikilyfinu Koffinátín og verkjalyfjunum Somadril Comp. og Treo.

Dolvipar töflur innhéldu þannig þrjú efni, kódeín, phenóbarbital og koffeín sem hafa í för með sér einhverja vímu og vissa hættu á ávanabindingu.

Finnbogi Rútur Hálfdanarson

lyfjafræðingur.