Er sykur ekki fitandi?

Spurning:
Getur þú útskýrt fyrir mér afhverju við fitnum? Er rétt að fólk myndar ekki fitu úr sykri/kolvetnum (kolhýdrötum), þannig að við fitnum af því að borða fitu en ekki sykur? Ef svo er, eru gosdrykkir þá nokkuð fitandi?

Svar:
Hvort við fitnum eða ekki er fyrst og fremst háð jafnvægi milli heildarorkuinntöku og brennslu hvers einstaklings. Helstu orkugjafar fæðunnar eru fita sem gefur 9 kcal /gr, kolvetni sem gefa 4 kcal /gr og prótein sem einnig gefa 4 kcal /gr.
Mikilvægt er að neyta þessa orkugjafa í réttum hlutföllum og hefur Manneldisráð gefið út leiðbeiningar fyrir almenning þar sem markmiðið er að fituneysla gefi ekki meira en 30% af heildarorku, prótein séu 10 -15% af heildarneyslu og kolvetni (sykur) gefi um 55 – 60% af heildarneyslunni. Sé þessum markmiðum fylgt og heildarorkuneysla fer ekki umfram orkuþörf einstaklingsins fitnum við ekki. Ef við hinsvegar neytum meiri orku heldur en líkaminn brennir, hvort sem hún er á formi fitu eða sykurs í fæðinu, geymir líkaminn hana í formi fitu.

Það er miserfitt fyrir líkamann að vinna úr umfram magni af fitu og kolvetnum. Fituna getur hann tekið beint upp og flutt í geymslu. Við það tapast einungis um 5% af orkunni. Kolvetnin þurfa að fara í gegnum margar efnabreytingar til að umbreyta þeim í fitu. Þessar breytingar krefjast mikillar orku og tapast þannig um 25% af orku kolvetnanna. Þegar nægilegt magn er af kolvetnum í fæðinu notar líkaminn þau frekar en fituna í brennslu og fer fitan þá beint í fitugeymslur og við fitnum. Ef minna er af kolvetnum í fæðunni en líkaminn þarfnast til brennslu notar hann fituna úr fæðinu til brennslu. Ef meira er af kolvetnum í fæðinu en líkaminn þarfnast, breytir hann þeim í fitu. Það er því jafn mikilvægt að huga að sykurneyslu og fituneyslu til að koma í veg fyrir að við fitnum.

Í gosdrykkjum er mjög mikið magn af sykri. Þegar við neytum þeirra hækkar blóðsykur og fellur síðan snarlega, þetta hefur neikvæð áhrif á líðan og líkamsstarfsemi og er engum hollt. Auk þess hefur mikil sykurneysla í för með sér tannskemmdir og því mikilvægt fyrir alla að takmarka neyslu á gosdrykkjum.

Kveðja,
Sólveig Magnúsdóttir, læknir