Getur saltneysla mín verið óhófleg?

Spurning:
Ég las það að salt bindi vökva í líkamanum eða eitthvað í þá áttina. Ég er sólgin í saltstangir. Er möguleiki á því að saltneysla mín sé óhófleg?

Svar:Of mikil saltneysla bindur vatn í líkamanum (dregur ekki vatn út úr honum) svo líkaminn á erfiðara með að losa sig við umframvökva. Mikil saltneysla getur þar af leiðandi valdið of háum blóðþrýstingi (of mikill vökvi í kerfinu). Fólk er misjafnlega viðkvæmt fyrir þessu, en flestir borða of mikið salt miðað við ráðleggingar sem taka mið af rannsóknum síðustu ára. Nú veit ég ekki hvort þú borðir saltstangir daglega eða í óhófi né hvernig mataræði þínu er háttað, þannig að ég á erfitt með að segja til um hvort þú sért að borða of mikið salt. Mikið af salti er í tilbúnum kjötvörum, ostum, pakkasúpum og sósum svo og saltkjöti, saltfiski og öðrum söltuðum matvælum. Tilbúnir réttir innihalda einnig oft mikið salt. Neyslu á þessum vörum ætti þar af leiðandi að stilla í hóf.

Kveðja,
Ingibjörg Gunnarsdóttir, næringafræðingur