Harðar ístrur á körlum

Spurning:

Af hverju fá karlmenn harðar ístrur, en konur ekki?

Svar:

Sæl.
Þessi munur er tilkominn vegna hormóna og ensímvirkni (hvatavirkni) í líkamanum. Lípóprótein lípasi, hvatinn sem þarf til að koma fitunni inn í fituvef og vöðva, verður fyrir áhrifum af hormónunum estrógeni og testósteróni. Estrógen veldur því að fitufrumur í brjóstum, mjöðmum og lærum mynda mikið af Lípóprótein lípasa sem hvetur þar af leiðandi til fitusöfnunar á þessu svæði. Testósterón hvetur til fitumyndunar á miðju svæði líkamans, inni við líffærin undir magavöðvunum. Þessi fita hefur miklu meiri fylgni við ýmsa sjúkdóma heldur en kvenlega fitan og þar sem hún er undir magavöðvunum þá myndast þessi „fallega“ lögun sem við köllum ístru.

Kveðja,
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
matvæla- og næringafræðingur