Húðslit eftir lyftingar

Spurning:

Sæl.

Ég vil byrja á að þakka fyrir góða síðu.

Ég er 22ja ára karlmaður og langar að athuga hvort þið getið gefið mér góð ráð um húðslit. Ég er búinn að stunda íþróttir lengi og hef alltaf verið grannur en nú síðastliðin tvö ár hef ég verið að lyfta stíft og fengið húðslit í kjölfar þess. Aðallega eru slitin undir handakrikum og undir rasskinnum. Þetta er frekar áberandi og ég vildi bara vita hvernig best væri að fást við slitin. Ég nota ekki ólögleg efni af neinu tagi en notast við prótein og kolvetnadrykki. Hef einnig notast við creatine. Ég veit af þessum kremum og leisermeðferðum en ætlaði að athuga hvort eithvað annað væri hægt að gera.

Með fyrirfram þökkum.

Svar:

Komdu sæll.

Þakka þér fyrirspurnina.

Húðslit er örvefur sem allir geta fengið – karl- jafnt sem kvenmenn. Af hverju það kemur? Þetta gerist vegna skyndilegrar þenslu húðarinnar og/eða hormónabreytinga t.d. er börn taka skyndilegan vaxtarkipp, kynþroskaaldur þegar unglingar fá tímabundna fitusöfnun og -dreifingu, hjá konum á meðgöngu og offitu þegar mikil þyngdaraukning verður á skömmum tíma. Staðsetnig slitanna er aðallega á mjóbaki, upphandleggjum, rassi, mjöðmum, lærum, kvið og brjóstum. Slitin eru bleik/rauð og geta verið mjög áberandi og fólk líður fyrir þetta útlit sitt. Þessi litur dofnar á næstu 1-2 árum og verður þá minna áberandi, nema í návígi. Venjulega er ekkert gert við slíkum húðslitum. Það er þó hægt að flýta fyrir því að rauðleitur liturinn dofni/hvítni með ljós-geisla meðferð. Einnig er hægt að gera aðgerð á slitunum. Er það einkum gert hjá konum sem hafa slitnað mjög illa á meðgöngu og húð á kvið er mjög teygð/lafandi á eftir og nær ekki sinni fyrri lögun þrátt fyrir líkamsrækt. Erfitt er að koma í veg fyrir að þetta gerist. Þó má reyna að fyrirbyggja það með því – kvölds og morgna – að bera á húðina gott krem/olíu og nudda því vel inn í húðina. Mörgum hefur reynst vel að nota krem sem inniheldur Aloe Vera sem er mjög græðandi.

Laser-lækning ehf í Domus Medica við Egilsgötu 3 í Reykjavík býður upp á meðferð með ljós-geisla tækni sem eyðir rauðum lit öra og gerir þau minna áberandi auk þess sem örin ná að draga sig saman að einhverju leyti. Vil ég benda á pistil minn á Doktor.is og heimasíðu fyrirtækisins þar sem nálgast má frekari upplýsingar um meðferðina auk þess sem þar er að finna myndir fyrir og eftir meðferð. Veffangið er: www.laserlaekning.is

Bestu kveðjur,
Hrönn Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri Laserlækningu.