Hvað er kólesteról?

Spurning:

Hvað er kólesteról og hvað telst ó/eðlilegt (hátt/æskilegt) magn í blóði?

Svar:

Kólesteról er fituefni sem allar frumur líkamans þurfa á að halda. Það er þó ekki nauðsynlegt að fá kólesteról í fæðunni því líkaminn getur sjálfur myndað allt það kólesteról sem hann þarfnast. Allir menn eru með kólesteról í blóðinu en magnið er mjög einstaklingsbundið. Kólesteról er alltaf bundið sérstökum flutningspróteinum í blóðinu, en helstu flokkar þeirra eru HDL og LDL fitupróteinin. LDL-kólesteról hefur tilhneygingu til að setjast innan á æðaveggi og hefur því verið kallað "slæma kólesterólið".

HDL-kólesteról hins vegar sér um að flytja kólesteról úr æðaveggjum til lifrarinnar. HDL-kólesteról gegnir þar mikilvægu hlutverki og þegar talað er um "góða kólesterólið" er átt við HDL.

Hátt kólesteról í blóði er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma, en vægi þess sem áhættuþáttur er mismunandi eftir einstaklingum. Þá vega aðrir
áhættuþættir einnig þungt, svo sem reykingar, sykursýki og hár blóðþrýstingur.

Viðmiðunarmörk fyrir heildarkólesteról í blóði (millimól í lítra)

Mjög hátt: meira en 8
Hátt: 6-8
Æskilegt: minna en 6

Ef æðaþrengsli eða önnur æðakölkun er til staðar er æskilegt að kólesterólið sé enn lægra, eða minna en 5.

Hlutfall "góða" og "slæma" kólesterólsins í blóðinu skiptir einnig miklu máli og er talið æskilegt að "góða" kólesterólið sé að minnsta kosti 1/4 af heildarkólesteróli í blóði.

Mataræði getur haft mikil áhrif á kólesterólmagn í blóði. Hörð fita (við stofuhita) inniheldur mikið af mettuðum fitusýrum eða svokölluðum trans-fitusýrum sem hækka kólesterólið. Mjúk fita er hins vegar gerð úr ómettuðum fitusýrum sem ekki hafa slík áhrif. Notum því magrar mjólkurafurðir, smyrjum brauðið lítið eða ekkert, notum matarolíur við matargerð í staðinn fyrir hart smjörlíki eða smjör. Sumar fæðutegundir úr dýraríkinu innihalda kólesteról. Það er samt þannig að magn kólesteróls í fæði hefur ekki úrslitaáhrif á kólesteról í blóði, það er harða fitan sem skiptir mestu máli. Kólesterólsnauð fæða getur því auðveldlega hækkað kólesteról blóðs ef hún hefur að geyma harða fitu! Það er þó rétt að takmarka neyslu á fæðutegundum sem innihalda mikið magn kólesteróls, en það eru til dæmis eggjarauður, rækjur og annar skelfiskur og einnig innmatur, lifur, hjörtu og nýru.

Kveðja,
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
matvæla- og næringafræðingur