Laserkostnaður við að taka öll aukahár?

Spurning:
Ég ætlaði bara að spyrja, ég er með PCOS eða eitthvað poly dæmi á eggjastokkunum. Þar af leiðandi er ég bókstaflega með hár alls staðar. Ég ætlaði bara að spyrja hvort tryggingar eða eitthvað hjálpa við að borga, taka af hárin af eða hvað svona lazer kostar á allt heila klabbið svona u.þ.b. Ég tel þetta verulega dýrt en er samt búin að fá leið á að vera í vaxmeðferð sem er sársaukafull og eiginlega ekki nægileg til að taka öll hárin. Með fyrir fram þökkum 
 
Svar:
Komdu sæl.  Þakka þér fyrirspurnina.

Eyðing á óæskilegum hárvexti er varanleg en það gerist ekki bara með einnri meðferð. Það þarf að endurtaka hverja yfirferð að meðaltali átta sinnum á búk og um tíu sinnum í andliti til að fá um 80-90% eyðingu og er hver meðferð gerð með minnst um 4-6 vikna millibili í andliti eða um 6-8 vikna millibili á búk. Engin svæði eru erfiðari en önnur. Þetta ræðst aðallega af háralitnum. Eftir því sem hárin eru dekkri þá eru þau full af litarefni og hreinlega gleypa ljósgeislann í sig á meðan rauð og ljós hár vantar þetta litarefni og eru því mun lengur að svara meðferð og því er engu hægt að lofa um árangur á slíkum hárum. Þó hefur það sýnt sig að þetta er mjög einstaklingsbundið. 

Að plokka og/eða vaxa hár verður að vítahring. Það eykur bara hárvöxtinn og hárin verða grófari og etv. dekkri einnnig. Varanlega háreyðingu færðu með ljós-geisla meðferðinni – 80-90% varanleg eyðing á dökkum hárum.

Húðprufa er gerð að minnsta kosti deginum áður en meðferð hefst. Verið er þá að kanna hvernig húðin bregst við hitanum sem notaður er í meðferðinni. Eiginleg meðferð getur byrjað deginum eftir að húðprufa hefur verið gerð.

Kostnaður ræðst af stærð meðferðarsvæðisins. Tryggingastofnun ríkisins tekur EKKI þátt í meðferð þessari. Við gefum tilboð við skoðun í fyrsta viðtali.

Vil ég benda á pistil minn á Doktor.is  (júlí, 2001) og heimasíðu fyrirtækisins þar sem nálgast má frekari upplýsingar um meðferðina auk þess sem þar er að finna myndir fyrir og eftir meðferð. Veffangið er: www.laserlaekning.is

Ég ráðlegg þér að hafa samband við okkur í síma 563-1070 og koma í viðtal og skoðun.  Það er þér að kostnaðarlausu.

Bestu kveðjur, Hrönn Guðmundsdóttir.