Mataræði vefjagigtarsjúklinga?

Spurning:
Geturðu gefið mér góð ráð um mataræði hjá vefjagigtarsjúklingum

Svar:
Það hefur ekki verið sýnt fram á með rannsóknum að ákveðið mataræði breyti miklu um vefjagigtina. Margir með vefjagigt lýsa því þó að þeir séu verri af gigtinni ef þeir borði ákveðnar fæðutegundir en það virðist einstaklingsbundið hvað hver og einn þolir illa. Mestu skiptir að borða fjölbreytta fæðu og þar er ágætt að fylgja ráðleggingum Manneldisráðs Íslands um mataræði sjá vefsíðu www.manneldi.is . Það er þó þekkt að mataræði hefur áhrif á líðan fólks og því rétt að hafa eftirfarandi í huga ef það hjálpar í baráttunni við vefjagigtina.

1) Ef þú ert yfir kjörþyngd þá er rétt að reyna að létta sig. Þú færð upplýsingar um kjörþyngd og ráðleggingar um mataræði við megrun á vef Manneldisráðs.
2) Þeir sem eiga það til að safna á sig bjúg ættu að skoða hvort saltneyslan hafi áhrif á bjúginn. Athugið að salta ekki yfir mat sem búið er að salta fyrir, borða lítið af saltríkum matvörum eins og hangikjöti, saltkjöti, saltstöngum, kartöfluflögurm, poppkorni og öðru nasli og reyna að nota ekki meira af salti, saltríku kryddi, kjötkrafti oþh en er í uppskriftum. Það er hægt að nota grænmeti, ávexti og ýmislegt saltlaust krydd til að bragðbæta matinn.
3) Góður svefn er mjög mikilvægur fyrir fólk með vefjagigt. Örvandi efni eins og t.d. koffín og gínseng halda fólki frekar vakandi og hafa því neikvæð áhrif á svefninn. Kaffi, te, kóladrykkir og drykkir sem innihalda örvandi efni ætti því að neyta í hófi sérstaklega á kvöldin.

Kveðja, Starfsfólk Gigtarlínu Gigtarfélags Íslands

Mig langar jafnframt að benda á bók sem heitir Leiðin að bættri líðan sem skrifuð er af Halldóru Sigurdórsdóttur og fjallar um það hvernig hún fann leið til þess að láta sér líða betur, en Halldóra er með vefjagigt og var nánast orðin rúmliggjandi af þeim völdum þegar hún fór að leita leiða til að vinna sjálfa sig upp úr því. Í bókinni er einnig að finna mikinn fróðleik um vítamín, steinefni, og aukaefni margskonar og hvernig þú átt að finna þau og hvað þú átt helst að forðast o.s.frv. Bók sem allir ættu að eiga á náttborðinu hjá sér og glugga í þegar spurningar vakna um hin ýmsu mál sem við koma heilsunni. Bókina getur þú keypt og fengið senda heim hér á vefnum hjá okkur á Doktor.is

Með kveðju og ósk um gott gengi
Jórunn Frímannsdóttir Hjúkrunarfræðingur
 www.Doktor.is