Rakstur á fótleggjum

Spurning:
Halló, ég er fjórtán ára stelpa og er nýbyrjuð að raka á mér lappirnar. En ég sé frekar eftir því, því ég fæ dekkri hár og fleiri. Nú las ég einhverstaðar að ef ég ef ég vaxaði í eitt skipti á mér lappirnar, þá myndu hárin byrja að vaxa upp á nýtt frá rót og þau yrðu þá ekki svona dökk. Það myndi bæta eitthvað. En er þetta satt? Og er eitthvað hægt að gera við þessu, kannski að lita hárin eða eitthvað?
Takk fyrir

Svar:
Halló fjórtán ára stelpa. Ég ræð þér eindregið frá því að raka á þér  fótleggina því eins og þú hefur þegar tekið eftir verða hárin grófari, dekkri og  vaxa hraðar við það. Best er að fara á snyrtistofu og láta fjarlægja hárin  með vaxi, þannig eru þau tekin upp frá rót og eru þess vegna lengur að vaxa upp en þegar þau eru skorin við húðina.Til að sem bestur árangur náist í  vaxmeðferð verða hárin að vera orðin a.m.k. 3 mm. og það getur verið erfitt að safna en það borgar sig samt. Þegar hárin eru rifin upp hefur þegar  myndast nýtt hár í hárpokanum og það fer eftir því á hvaða stigi nýja hárið er  hvenær það kemur upp.Krem sem hægir á hárvextinum, lýsir hárin og  gerir þau fíngerðari er æskilegt að nota eftir vax. Þessi krem eru mjög virk og árangurinn meðferðar miklu meiri, þau eru notuð daglega í 2-7 daga. Þú getur líka vaxað þig sjálf heima því ýmsar tegundir að vaxi fást í verslunum og apótekum en ég ráðlegg þér samt að láta fagmanneskju sjá um það í fyrsta skipti.Hvað sem þú ákveður að gera þá ráðlegg ég þér að hætta strax að raka á þér fótleggina. Kveðja,
Sigrún Konráðsdóttir, snyrtifræðingur.