Sársauki við samfarir

Hver
finnur til við samfarir?

Karlmenn finna sjaldan fyrir sársauka
við samfarir, nema þeir hafi of þrönga forhúð eða bólgur í
blöðruhálskirtli eða eistum.
Verkir við samfarir eru algengari
hjá konum. Þeir eru flokkaðir eftir staðsetningu í ytri
verki, ef þeir eru í legopi eða leggöngum – og innri verki
umhverfis leg, eggjastokka og eggjaleiðara – eða jafnvel í öllum
neðri hluta mjaðmagrindarholsins.

Um hvers konar verki getur verið að ræða?

Talað er um árekstrarverki.
Það er sársauki, sem konan fær þegar limurinn rekst á aumt
svæði í legopi eða í skeið – alltaf eða við ákveðnar
stellingar.
Verkir sem koma við fullnæginguna.
Verkir, sem konan fær eftir á –
jafnvel daginn eftir.

Hvað veldur sviða eða skerandi sársauka í legopi?

Ef verkir, sviði eða sárindi er í
legopi og leggöngum gæti verið um að ræða sveppa- eða
bakteríusýkingu í kynfærum eða þvagfærum. Læknisskoðun
sker úr um hvernig á að meðhöndla þetta.

Hvað veldur verkjum og samdrætti í legopi?

Verkir og samdráttur í legopi,
þegar vöðvarnir dragast saman og hindra samfarir, kallast
vaginismus eða skeiðarkrampi.
Þetta er ekki raunverulegur
krampi. Aðeins ósjálfráðir vöðvasamdrættir sem koma oft
í ljós í fyrsta sinn sem kynmök eru reynd og getur versnað við
endurteknar misheppnaðar tilraunir, vegna þess að öryggisleysi og
þverrandi sjálfstraust valda vaxandi samdrætti.
Ef þessi vandi kemur upp þarf konan
að leita til heimilislæknis og hugsanlega kvensjúkdómalæknis
ásamt maka sínum. Þetta er ekki bara vandamál konunnar
heldur beggja aðila sem þurfa að vera saman.

Hvað er gert við sársauka og samdrætti í legopi?

Meðferðin er svokölluð
sjálfsútvíkkun (autodilatation) eða útvíkkun með
plaststautum sem eru misstórir og misþykkir og er honum stungið inn
í leggöngin í rólegheitum heima og án þeirrar viðbótarspennu,
sem fylgir kynlífi. Þegar konan hefur náð tökum á þessu,
á kærastinn að reyna að tileinka sér þetta, því hann er að
sjálfsögðu jafnhræddur og þú við sársaukafullar samfarir.
Víkkað er út án þvingunar og
sársauka og tilgangurinn er að kenna vöðvunum í skeiðaropinu að
slaka á þegar einhverju er stungið þar inn og á auk þettsa að
örva sjálfstraustið og fá konuna til að trúa að þetta sé
hægt.

Hvað veldur árekstrarverkjum?

Árekstrarverkir geta orsakast af
sýkingu, vatnsblöðru á eggjastokki, afturbeygðu legi eða legslímuvillu
(endometriosis).

Hvað veldur sársauka við samfarir og fullnægingu?

Sársauki við og eftir fullnægingu
er yfirleitt staðbundin í aumum vöðvum í
grindarholsbotninum. Vöðvum sem konan er ekki sjálf fær um
að meta og þreifa á og nær ekki að stjórna eins og öðrum
vöðvum, með því að spenna þá eða slaka á.
Staðbundnar breytingar í snípnum
eða leginu eru einnig mögulegar orsakir.
Til dæmis eru verkir algengir
fylgifiskar móðurlífsbólgu. Bólgurnar geta hjaðnað á
viku, en verkir í legi halda áfram – og ekki síst við samfarir.

Hvernig eru vöðvaverkir við samfarir meðhöndlaðir?

Ef mikið álag er vegna vinnu,
fjölskyldumála eða kynferðismála er eðlilegt að bregast við
með því að spenna vöðva, ómeðvitað, í móðurlífinu.
Í samförum verður álagið of mikið og kemur fram sem
krampakenndir verkir í samförum eða á eftir þeim – einnig daginn
eftir.
Verkja- og gigtarlyf geta linað
þrautirnar, en lækna ekki kvillann.
Það er áríðandi að láta
kvensjúkdómalækni skoða sig. Slík skoðun gæti tekið af
grun um að verkirnir stafi af sjúkdómi eða sjúklegu ástandi, og
læknirinn getur þá vonandi sannfært konuna um að hún sé aum í
vöðvunum.
Heldur flóknara er að leita orsaka
verkjanna. Oftast má finna ástæðuna utan líkamans.
Það þarf líka að læra að beita vöðvunum rétt og
markvisst. sjúkraþjálfari eða leiðbeinandi í slökun sem
læknirinn vísar á, gæti bent á rétta leið.