Streptokokkar tegund B í leggöngum?

Spurning:
Geti þið frætt mig um Group B Strep sýkingu og hvaða áhrif hún hefur á þungaðar konur ?

Svar:
Sæl.
Rannsóknir sýna að allt frá 5 til 25% kvenna eru með bakteríuna Streptokokka af
tegund B (GBS) í leggöngum. Yfirleitt gefur bakterían engin einkenni
en þegar kona sem ber í sér sýkilinn verður barnshafandi geta komið upp vandamál.
Helstu vandamálin eru legvatnsleki og sýking í legholi ásamt fyrirburafæðingum.
Streptokokkar geta einnig valdið þvagfærasýkingum og finnast stundum í hálsi
og endaþarmi. Börn sem fæðast um fæðingarveg sem sýktur er með Streptokokkum
af tegund B geta hlotið alvarlega sýkingu, en þetta á einungis við um 1-2%
barna þeirra mæðra sem bera GBS. Þar sem sýking í leggöngum getur komið án
einkenna og kona getur smitast aftur eftir meðferð er lítil gagnsemi í kembileit
að sýklinum í leggöngum kvenna. Ræktanir eru þó alltaf teknar ef kona er
með fyrirvarasótt eða legvatnsleka fyrir tímann og viðeigandi sýklalyfjameðferð
gefin. Kveðja,
Dagný Zoega, ljósmóðir