Sviði í augum vegna svita?

Spurning:

Ég tek inn kvíðalyfið Míanserín 50 mgr og Imovane 7,5 mgr f. svefn. Að morgni tek ég 20 mgr af Cipralex. Mig svíður örlítið í augu af svita á enni sem lekur niður. Er samhengi þarna á milli?

Svar:
Möguleiki er á að Cipralex geti valdið eitthvað aukinni svitamyndun. Ég sé þó ekki að samsetning svitans ætti að breytast þannig að það valdi meiri sviða í augum en sviti gerir yfirleitt.

Finnbogi Rútur Hálfdanarson, lyfjafræðingur