Tourette, athyglisbrestur og unglingabólur?

Spurning:
Góðan daginn.
Ég er í smá vandræðum og vantar að fá ráðleggingar. Ég á 15 ára son sem greindur er með tourette og athyglisbrest og það gengur þokkalega með tourette ef ég passa að hafa hann ekki undir neinu álagi, en það er nú stundum ekki hægt að komast hjá álagi og þá eru kækirnir sem þessu fylgir svolítið miklir. En svo er það athyglisbresturinn sem er honum nú erfiðari og hann spyr í sífellu hvort ekki sé eitthvað hægt að gera við því. Þetta tekur mjög á hann sjálfan og að sjálfsögðu aðra heimilismeðlimi. Hann er núna komin í sér bekk þar sem eru færri börn og fleiri kennarar og er ánægður með það og finnst hann nái betur að læra en það fer ansi illa með hann að gleyma öllu og það bitnar nú mest á heimilislífinu. Hann var áður á ritalín og mér fannst það nú engin töfralausn, kanski hjálpaði eitthvað en ekki nóg.Við prófuðum að gefa honum lecithin og hann vill meina að það hjálpi eitthvað. En mig langar til að vita hvort þið eigið einhver góð ráð handa okkur til að prufa. Við búum í Danmörku og vildum gjarnan prófa eitthvað nýtt en vitum ekki hvað það gæti verið (ég hef að sjálfsögðu fengið fullt af ráðum en ekki frá fagfólki).
Svo er eitt annað sem mig vantar að fá ráðleggingar um, en það eru unglingabólurnar svokölluðu. Hann er með frekar mikið af þeim og vill að sjálfsögðu að þær hverfi bara. Það eina sem ég hef gert í því er að láta hann hreinsa húðina með hreinsivatni og að sjálfsögðu vatninu úr krananum.en ég vildi gjarnan fá að vita hvað er meira hækt að gera við því. Vonandi getið þið gefið mér einhver góð ráð þótt ég eigi nú kannski ekki von á neinni töfralausn.
Með fyrirfram þökk. Áhyggjufull Mamma

Svar:

Þar sem drengurinn hefur greinst bæði með Tourette og athyglisbrest tel ég að hann þurfi að fara til barnalæknis sem hefur góða þekkingu á þessum tveimur greiningum. Hann finnur svo út hvaða lyf koma til greina og prófar á honum hvert þeirra er honum heppilegast.  
Að því er varðar námið í skólanum og heimanámið eru allmörg atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga og fylgja eftir. Þetta varðar fyrirmæli, skipulag, vinnulotur og fleira sem ég tel upp í Ofvirknibókinni. Þar eru ráðabankar fyrir kennara, foreldra og þann sem er með fvirkni /AMO/ADHD.Einnig vil ég benda á bókina Tígurinn taminn sem Tourette-samtökin þýddu og gáfu út. Þar er mikið af leiðbeiningum og ráðum fyrir nemendur sem eru bæði með ADHD og Tourette og raunar margt fleira.Bestu kveðjur – Ragna FreyjaÁstæður fyrir unglingabólum eru mjög einstaklingsbundnar svo erfitt er að finna lausnina án þess að sjá viðkomandi. Það sem getur valdið bólum er mataræði, sætindi og steiktur matur, einnig sítt hár sem er mikið yfir andlitinu, lyf og það sem er algengast á þessum aldri, hormónastarfsemin. Mikilvægt er að hreinsa húðina vel á hverju kvöldi og er hægt að fá hreinsivörur sem eru með herrailm og höfða því betur til karlmanna. Þú segir að hann sé að nota hreinsivatn, athugaðu hvort það er fyrir feita húð.  Einnig er gott að nota hreinsimaska einu sinni í viku til að þurrka húðina svolítið upp og krem eða gel sem dregur úr fituframleiðslu húðarinnar á dagin. Best er að fara á snyrtistofu og byðja um ráðleggingu með hvaða krem henta. Ef húðin er slæm tekur tíma að laga hana svo hann þarf að sýna þolinmæði. Oft hjálpar til að fara í nokkra ljósatíma, það þurrkar húðina, en ekki of marga því geislarnir eru ekki hollir fyrir húðina. Ef húðin lagast ekki er nauðsynlegt að fara til húðsjúkdómalæknis, þeir geta oftast lagað svona bóluvandamál sem geta verið viðkvæm á þessum aldri.Vonandi er eitthvað gagn í þessum ráðleggingum fyrir ykkur og hafið það gott í Danmörku.

Sigrún Konráðsóttir, snyrtifræðingur