Vandamál með hárvöxt

Spurning:
Ég á í vanda með hárvöxt. Ég er 16 ára og er alltof loðinn, þetta fer í taugarnar á mér, ég er kominn með nóg af þessu. Er ekki dýrt að fara í leyser háreyðingu???

Svar:

Eyðing á óæskilegum hárvexti er varanleg en það gerist ekki bara með einnri meðferð. Það þarf að endurtaka hverja yfirferð að meðaltali átta sinnum á búk og um tíu sinnum í andliti til að fá um 80-90% eyðingu og er hver meðferð gerð með minnst um 4-6 vikna millibili í andliti eða um 6-8 vikna millibili á búk. Engin svæði eru erfiðari en önnur. Þetta ræðst aðallega af háralitnum. Eftir því sem hárin eru dekkri þá eru þau full af litarefni og hreinlega gleypa ljósgeislann í sig á meðan rauð og ljós hár vantar þetta litarefni og eru því mun lengur að svara meðferð og því er engu hægt að lofa um árangur á slíkum hárum. Þó hefur það sýnt sig að þetta er mjög einstaklingsbundið.

Húðprufa er gerð að minnsta kosti deginum áður en meðferð hefst. Verið er þá að kanna hvernig húðin bregst við hitanum sem notaður er í meðferðinni. Eiginleg meðferð getur byrjað deginum eftir að húðprufa hefur verið gerð.

Kostnaður ræðst af stærð meðferðarsvæðisins. Tryggingastofnun ríkisins tekur ekki þátt í meðferð þessari. Við gefum tilboð við skoðun í fyrsta viðtali.

Vil ég benda þér á pistil minn á Doktor.is (júlí, 2001) og heimasíðu okkar þar sem þú getur lesið þér til um þá meðferð sem við gerum auk þess sem þar er að finna myndir fyrir og eftir meðferð. Veffangið er: www.laserlaekning.is

Bestu kveðjur. Hrönn Guðmundsdóttir.