Vöðvaþjálfunartækið Gym Form Plus²

Spurning:

Hvað segir þið um vöðvaþjálfunartæki „Gym Form Plus" eins og selt er í sjónvarpskringlunni. Er það gott t.d sem nuddtæki? Virkar það sem þjálfunartæki? Er þetta töfratæki?

Svar:

Trimform, Slendertone, Strata 1.2.3. og Eurowave eru svokallaðar rafleiðnimeðferðir. Rafleiðnimeðferð getur vissulega haft miklu hlutverki að gegna þegar um endurhæfingu fatlaðra einstaklinga er að ræða enda var þessi meðferð upphaflega fundin upp í þeim tilgangi. Þá er hægt að örva vöðva sem viðkomandi getur ekki þjálfað vegna fötlunar sinnar. Stækkun á vöðvum er hinsvegar óveruleg eða engin. Sem leið til fitubrennslu er rafleiðnimeðferð nánast gagnslaus. Ástæðan fyrir því að fólk missir einhverja sentimetra eftir einn tíma getur tengst tilfærslu vatns í líkamanum. Í þeim tilfellum sem fólk, sem gengist hefur undir slíka meðferð, hefur grennst töluvert er ástæðan sú að samhliða rafleiðnimeðferðinni hefur verið dregið úr hitaeininganeyslu. Þegar markmiðið er að styrkja vöðva og brenna fitu er eina raunhæfa leiðin að stunda reglubundna hreyfingu og gæta hófs í matarneyslu.

Kveðja,
Ágústa Johnson