Sogakvef (pseudocroup)

Efnisyfirlit

Hvað er sogakvef?

Sogakvef er skyndilegur samdráttur í efri hluta öndunarfæra sem veldur þar þrengingu, einnig getur komið bjúgur í slímhúð öndunarfæranna. Oftast kemur sjúkdómurinn fram á þann hátt að barnið vaknar upp um miðja nótt, kaldsveitt og hrætt með hávær innöndunarsoghljóð. Þessu fylgir harður, geltandi hósti sem minnir á selsgelt. Sogakvef getur komið með eða án kvefeinkenna. Börnin eru hitalaus. Þetta gengur venjulega yfir á 1-2 klst. en köstin geta endurtekið sig. Mikilvægt er að allir sem sinna barninu haldi ró sinni. Sjúkdómurinn er algengastur hjá börnum á aldrinum 1-5 ára. Sjúkdómur sem lýsir sér á svipaðan hátt er kvashósti (croup) en þá er bólga orsök þrengingar öndunarvegarins. Þau börn eru veikari og venjulega með hita.

Hver er orsökin?

  • Talið er að orsök sjúkdómsins séu veirur en orsökin er oft óviss.
  • Ef barnið hefur áður fengið sogakvef hefur það tilhneigingu til að endurtaka sig. Eftir 4-5 ára aldurinn minnka einkennin.
  • Ofnæmi gagnvart parainflúensu veirunni getur jafnvel átt einhvern þátt í sjúkdómsmyndinni. Börn með ofnæmi fá oftar pseudocroup.
  • Sálrænir þættir geta átt hlut að máli.

Hver eru einkennin?

  • Hrjúfur og geltandi hósti.
  • Sogandi andardráttur og hæsi.
  • Einkenni byrja á nóttinni, þegar barnið hefur legið í einhvern tíma.
  • Engin hitahækkun.
  • Oft enginn undanfari en barnið getur hafa haft smá kvef dagana á undan.
  • Gengur yfirleitt yfir á 1-2 klst.
  • Köstin geta endurtekið sig.

Hverju ber að huga að?

  • Hvort barnið fær hita og verður veikindalegt.
  • Hvort barnið verður mjög þreytt og sinnulaust.
  • Hvort barnið verður bláleitt umhverfis munn, nef og neglur.
  • Hvort barnið á erfitt með andardrátt.

Hvað er hægt að gera?

  • Mikilvægast er að hafa rólegt umhverfi. Látið barnið slaka á og reynið að halda því afslöppuðu. Grátur barnsins eykur hjá því slímmyndun sem þrengir loftveg.
  • Verið sjálf róleg. Barnið skynjar óróleika og hræðslu.
  • Láttu barnið sitja, þannig að auðveldara verður fyrir það að anda.
  • Gott er barnið andi að sér vatnsgufu, t.d. með því að láta heitavatnið renna inni á baðherbergi og láta herbergið mettast dálítið af gufu. Sitja síðan hjá barninu í gufunni og reyna að róa það.
  • Einnig getur linað einkennin að klæða barnið vel og fara með það út í þurrt og kalt andrúmsloft.

Hvernig greinir læknirinn sjúkdóminn?

  • Greiningin byggist á sjúkdómseinkennum.
  • Mikilvægt er að greina frá öðrum sjúkdómum sem valda þrengingu í öndunarfærum og geta verið hættulegir.

Hver er meðferðin?

  • Engin lyf eru nauðsynleg.
  • Gufumeðferð hjálpar mest, einnig þurrt kalt loft.
  • Hægt er að geta barninu róandi lyf ef það er mjög angistarfullt

Greinin var uppfærð í apríl 2020 af Guðrúnu Gyðu Hauksdóttur

Höfundur greinar