Hvað er veirupróf (HPV) og hvernig er það framkvæmt?

Spurning:

Sæll.

Hvað er veirupróf (HPV) og hvernig er það framkvæmt? Ef kona hefur greinst með frumubreytingar í leghálsi og verður að bíða í sex mánuði eftir næstu skoðun getur hún þá beðið um veirupróf og fengið niðurstöðuna strax í stað þess að bíða?

Með fyrirfram þökkum.

Svar:

Sæl.

Hvað er HPV próf?
HPV veirupróf er próf sem kannar hvort kona eða maður hefur smitast af veirunni „human papilloma virus (HPV)“. Veiran hefur yfir 100 undirflokka og valda sumir þeirra góðkynja vörtum á kynfærum (condyloma) en aðrir geta leitt til þróunar leghálskrabbameins og forstiga þess sjúkdóms. Veiran smitast við samfarir og getur jafnframt valdið krabbameini á skapabarmi, leggöngum, getnaðarlim, hálsi og öndunarvegi. Greina má nýlegt smit með því að taka strok frá leghálsi konu eða getnaðarlim karlmanns. Eldra smit er greint með blóðsýni. HPV smit er ekki unnt að lækna nema það leiði til kynfæravarta eða forstigsbreytinga en þær breytingar er unnt að lækna með minniháttar læknismeðferð.

Tíðni HPV smits:
Talið er að um 50% allra kvenna er hafa haft samfarir fái slíkt smit einhvern tímann á sinni lífsævi og sannað er að áhættan eykst með fjölda rekkjunauta konu eða manns. Ónæmiskerfi þeirra einstaklinga er smitast losar þá þó í flestum tilfellum við þessa sýkingu sem glögglega má sjá af því að tíðni forstigsbreytinga og kynfæravarta hjá yngri konum er langt undir tíðni HPV sýkinga.

Alvarleiki forstigsbreytinga:
Forstigsbreytingum í leghálsi er skipt í mismunandi stig eftir alvarleika breytingarinnar. Vitað er að flest væg forstig geta sjálfkrafa horfið án meðferðar og reynslan hefur sannað að óhætt er að fylgja vægri forstigsbreytingu eftir með nýju leghálsstroki innan hálfs árs frá greiningu. Meðalsterkar og sterkar forstigsbreytingar hverfa aftur á móti síður af sjálfsdáðum og leiðir greining þeirra því ávallt strax til nánari skoðunar með leghálsspeglun. Við speglunina er tekið lítið vefjasýni frá leghálsi en rannsókn þess ákvarðar síðan hvort gera þurfi keiluskurð.

Getur HPV próf flýtt ákvörðunartöku um meðferð?
Spurningin er hvort HPV greiningarpróf geti flýtt fyrir ákvörðun um leghálsspeglun hjá konum með vægar forstigsbreytingar. Erlendar rannsóknir hafa bent til að slíkt próf geti auðveldað ákvörðun um hvort framkvæma eigi strax leghálsspeglun hjá konu með óljósar vægar frumubreytingar. Erlendis er eftirlit þó mun slakara en hér á landi og því meiri hætta á að konunni sé ekki fylgt eftir sem skyldi. Hér á landi hefur því verið ákveðið að spara þann kostnað sem fylgir slíkri veirurannsókn og ákvörðun er tekin um leghálsspeglun eftir hálft ár þegar ljóst er hvort forstigsbreytingin hefur gengið til baka eða ekki.

Hvenær kemur HPV próf að gagni:
HPV veirupróf getur aftur á móti komið að gagni hjá konum þar sem misræmi er milli niðurstöðu frumustroks og leghálsspeglunar. HPV próf auðveldar í slíkum tilfellum ákvörðunartöku um hvort sleppa megi slíkri konu úr eftirliti eða senda hana í keiluskurð þrátt fyrir eðlilega niðurstöðu leghálsspeglunar. Jafnframt hefur verið rætt um að HPV próf geti auðveldað að sjá hvaða konur eru í áhættu að fá sjúkdóm aftur eftir keiluskurð. Prófið gæti loks hentað til að ákveða hvort óhætt sé að hætta krabbameinsleit eða lengja millibil skoðana hjá konum eftir miðjan aldur sem haft hafa eðlileg leghálsstrok.

Bólusetning:
Að lokum má geta þess að sú staðreynd að leghálskrabbamein orsakast af veiru hefur leitt til þróunar bóluefnis sem leitt getur til útrýmingar sjúkdómsins er fram í sækir.

Kveðja,
Kristján Sigurðsson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins