Hvernig kemur það framm á heilsunni?
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina.
Skortur á kalíum er fremur óalgengur en kemur helst fram hjá fólki sem notar þvagræsandi lyf þar sem þau eyða kalíum úr líkamanum.
Einkenni skorts lýsa sér sem bjúgur, blóðsykurskortur, háþrýstingur, þreyta, slen, vöðvaverkir, húðþurrkur, niðurgangur, harðlífi, skert starfsemi ósjálfráða taugakerfisins, taugaveiklun, þrálátur þorsti, hjartsláttaróregla, sykuróþol, svefnleysi, lágþrýstingur, og þrálátir höfuðverkir.
Þú getur lesið þér betur til með því að smella á tengilinn hér
Ef þú heldur að þú sért með kalíum skort mæli ég með að leita til læknis.
Gangi þér vel,
Bylgja Dís Birkisdóttir, hjúkrunarfræðingur.