Dofi í fingurgómum

Af hverju stafar dofi í öllum fingurgómum ég er lengi búin að vera með dofa í
Öllum fingurgómum

Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina

Doði fram í fingur er einkenni sem getur átt við ótalmargt og misalvarlegt.

Oftast er um að ræða þrýstingur á taug einhversstaðar á svæðinu  frá öxl og niðurúr sem getur orsakast af bólgum (til dæmis vöðvabólga, taugasjúkdómar)  eða verið afleiðing af áverka (til dæmis högg, slitgigt).

Eins getur verið um að ræða einhver truflun á taugastarfssemi af öðrum völdum eins og þekkt er með ýmsa taugasjúkdóma.

Ef þetta gengur ekki til baka eða er að gerast endurtekið er nauðsynlegt að fá aðstoð læknis til að greina hvað um sé að ræða og hvað sé til ráða. Heilsugæslulæknir getur með skoðun og rannsókn metið hvort þörf sé á frekari skoðun til dæmis hjá bæklunarlækni eða taugasérfræðingi.

Gangi þér vel,

Bylgja Dís Birkisdóttir, hjúkrunarfræðingur