Fjörfiskur eru ósjálfráðir vöðvakippir í augnloki,oftast efra loki. Þessir kippir geta varað frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga
Orsakir
Ástæður fjörfisks eru ekki þekktar en vitað er um nokkra þætti sem geta útleyst þessa vöðvakrampa.
- Áfengi
- Mikil birta
- Koffein
- Reykingar
- Vindur í augu
- Erting í auga eða innan í augnlok
- Mikið álag eða þreyta
Þegar augnlok loka alveg fyrir augað er það oftast vegna áreitis eða skemmda á hornhimnu eða innan á augnloki.
Ýmsir augnsjúkdómar geta líka valdið fjörfisk en fjörfiskur er sjaldan merki um alvarlega sjúkdóma.
Meðferð.
Fjörfiskur hverfur yfirleitt af sjálfu sér á nokkrum klukkutímum. Ráð til að flýta fyrir bata eða koma í veg fyrir fjörfisk eru
- Hvíld,svefn
- Draga úr koffeinneyslu
- Nota augn/rakadropa
Hvenær á að leita til læknis?
- Ef fjörfiskur hverfur ekki innan viku
- Ef augnlokið lokar alveg auganu
- Ef samdrátturinn kemur fram annars staðar í andlitinu
- Ef augað er bólgið,rautt eða vessar úr því.
- Ef efra augnlok hangir eða sígur niður
Höfundur greinar
Guðrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Allar færslur höfundar