Fyrirspurn:
Eru til fleiri þungunarhormón en hCG? er það ekki hormónið sem segir til um hvort maður sé óléttur eða ekki? Hversu hátt fer það á meðgöngunni og hvenær er það hæst og lægst?
með fyrirfram þökk.
Sæl og takk fyrir fyrirspurnina.
Þungunarhormón eða human Chorionic Gonadotropine hormone (hCG) myndast í fylgjunni þegar hún myndast skömmu eftir frjóvgun. Styrkur þess eykst mjög hratt á meðgöngutíma og á fyrstu átta til níu vikum meðgöngunnar tvöfaldast gildi þungunarhormónsins (hCG) á 36-48 klst. fresti.
Við um það bil níu vikur nær gildið hámarki en fellur svo snöggt og er mjög lágt það sem eftir er meðgöngunnar.
Hér er listi yfir gildin – en hann er bara til viðmiðunar: (FSB=frá síðustu blæðingum)
3 vikur FSB: 5 – 50 mIU/ml
4 vikur FSB: 5 – 426 mIU/m
5 vikur FSB: 18 – 7,340 mIU/ml
6 vikur FSB: 1,080 – 56,500 mIU/ml
7 – 8 vikur FSB: 7, 650 – 229,000 mIU/ml
9 – 12 vikur FSB: 25,700 – 288,000 mIU/ml
13 – 16 vikur FSB: 13,300 – 254,000 mIU/ml
17 – 24 vikur FSB: 4,060 – 165,400 mIU/ml
25 – 40 vikur FSB: 3,640 – 117,000 mIU/ml
Konur sem ekki eru þungaðar: <5.0 mIU/ml
Konur sem eru komnar á breytingaraldur/hættar á blæðingum: <9.5 mIU/ml
Með bestu kveðju
GuðrúnGyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur