Hvað er Bleikjuhreistur (Pityriasis rosea)?

Spurning:

Bleikjuhreistur, pityriasis rosea. Er það einhverskonar veirusjúkdómur í húð? Gæti ég fengið nánari skýringar á þessu?

Kveðja.

Svar:

Pityriasis rosea er algengur húðsjúkdómur með einkennandi útbrotum á húð. Hann er algengastur hjá ungu fólki og talin vera af völdum veiru. Sjúkdómurinn er ekki smitandi og gengur yfir af sjálfu sér.

Pityriasis rosea byrjar oftast með bleikum egglaga flekk á baki eða brjósti, um 3-6 cm að stærð og er hann oft er kallaður „móðurflekkur”. Honum fylgja smærri blettir af sama toga sem dreifast á bol, háls og handleggi. Útbrotin eru vel afmörkuð, aðeins upphleypt og í miðju þeirra verður húðin stundum þurr og hreistruð. Þessi útbrot hverfa oftast á 4-8 vikum, geta þó varað í allt að 12 vikur en skilja ekki eftir sig varanleg ummerki á húðinni. Kláði í húð getur komið fram samfara útbrotunum en sjaldnast fylgja önnur einkenni þó geta þreyta og höfuðverkur komið fram. Heit böð og líkamleg áreynsla geta aukið á útbrotin. Ekki er þörf á meðferð við vægum sjúkdómseinkennum. Varast skyldi að klóra eða skrúbba húðina, en nota rakakrem til að mýkja hana og nota má krem sem draga úr kláða. Mild sterakrem má nota til að minnka bólgu og andhistamín lyf í töfluformi (ofnæmislyf) er hægt að taka við miklum kláða. Sjúkdómurinn getur líkst öðrum húðsjúkdómum svo sem sveppasýkingu og því æskilegt að læknir greini sjúkdóminn.

Kveðja
Erla Sveinsdóttir, læknir