Insúlínóháð sykursýki og mataræði

Spurning:

Ég er 42 ára og er með áunna sykursyki, insúlínóháða. Ég er í kjörþyngd og hef alltaf getað borðað það sem mig langar í.

Nú þarf ég að breyta um mataræði. Getur þú ráðlagt mér hvað ég má borða og hvað ekki.

Takk fyrir.

Svar:

Sæl.
Ráðleggingar til einstaklinga með sykursýki hafa breyst mikið á síðustu áratugum, úr því að vera hálfgert svelti yfir í kolvetnasvelti og nú yfir í það að vera mjög líkt því fæði sem talið er æskilegast fyrir fullfríska einstaklinga. Fjöldinn allur af rannsóknum hefur leitt til þessara breytinga þar sem markmiðið er að halda blóðsykri sjúklinga stöðugum með réttu mataræði til að koma í veg fyrir algenga fylgikvilla sykursýki, þ.e. hjarta- og æðasjúkdóma og nýrnabilun. Sykursýki birtist í tveimur gerðum, sykursýkiaf gerð 1 og 2. Sykursýki af gerð 1 er insúlínháð sykursýki, þar sem einstaklingar framleiða ekki insúlín og geta því ekki stjórnað blóðsykri nema með insúlíngjöf. Þessi gerð af sykursýki kemur yfirleitt fram fyrir 30ára aldur. Sykursýki af gerð 2 er nefnd fullorðinssykursýki eða insúlínóháð sykursýki, en þar hefur einstaklingurinn næga framleiðslu á insúlíni en frumur líkamans eru ónæmar fyrir insúlíninu og skapast því svipað ástand ogvið sykursýki af gerð 1. Í megindráttum er fæði fyrir báðar tegundir svipað þó áherslur geti verið aðeins mismunandi eftir því á hvaða stigi sykursýkin er. Í sykursýki af gerð 1 þurfa matmálstímar og hreyfing að vera í samræmi við insúlíngjöf.

Megináherslurnar varðandi mataræði einstaklinga með sykursýki eru annars eftirfarandi.

Eins og áður sagði eru ráðleggingar fyrir þá svipaðar þeim ráðleggingum sem gefnar eru heilbrigðum einstaklingum, þannig að fæði einstaklinga með sykursýki ætti ekki að vera frábrugðið fæði annarra í fjölskyldunni. Það að halda kjörþyngd eða komast niður í kjörþyngd er mikilvægt. Jafnvel mjög lítið þyngdartap (ef viðkomandi er yfir kjörþyngd) getur bætt blóðsykurstjórnun til muna. Í þessu sambandi er ágætt að hafa íhuga að fita gefur mikla orku og þar af leiðandi æskilegt að draga úr fituneyslu og þar með orkuinntöku. Hreyfing er gífurlega mikilvæg fyrir sykursjúka eins og aðra og ráðleggingin er sú að stunda hæfilega erfiða líkamsrækt í 20-30 mín. flesta daga. Vegna aukinnar hættu á hjarta- og æðasjúkdómum ættu einstaklingar með sykursýki að takmarka neyslu á mettaðri fitu (fitu sem er hörð við stofuhita) og transómettaðri fitu (t.d.úr nokkrum tegundum smjörlíkis) þar sem þessi fita hefur sýnt sig auka kólesteról í blóðinu sem aftur er einn af aðaláhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Kolvetni ættu að gefa 45-60% orkunnar en forðast eða nota í hófi kolvetni sem hækka blóðsykur hratt, svo sem hvítan sykur, ávaxtasykurog mjólkursykur. Trefjaríkt fæði hjálpar til við blóðsykurstjórnun. Gróft korn og grænmeti veita okkur mikið af trefjum og valda heldur ekki stórumsveiflum í blóðsykri. Fituinnihald í fæði ætti að vera í samræmi við manneldismarkmið, þ.e. 25-35% orkunnar. Andoxunarefni sem við fáum meðal annars úr grænmeti og ávöxtum vernda gegn hjarta- og æðasjúkdómum og eru þvímjög mikilvæg fyrir einstaklinga með sykursýki. (Eur J Clin Nutr 2000;54:353-355)

Hér á eftir eru praktískar ráðleggingar varðandi fæðuval einstaklinga meðsykursýki (og flestar ráðleggingarnar eiga við um fullfríska einstaklinga einnig).

Helstu vörur á bannlista fyrir sykursjúka (vörur sem hækka blóðsykur mjög mikið) eru sykur, púðursykur, molasykur, flórsykur, hunang, sætar og feitarkökur/kex og tertur, seytt rúgbrauð, ávaxtasúpur og ávaxtagrautar, súkkulaði, brjóstsykur, ís, búðingar og fleira sem er mjög sykursætt.

Takmarka ætti mjólkurdrykkju við 1-2 glös á dag (1/2-1 1/2 dl í einu) oghreinan ávaxtasafa einnig við 1-2 glös á dag, þar sem þessir drykkir valda mikilli blóðsykurhækkun í einstaklingum með sykursýki. Mjólkin ætti að vera fitulítil, þ.e. undanrenna, fjörmjólk eða léttmjólk í stað nýmjólkur. Ekki er ráðlegt að drekka bæði mjólk og ávaxtasafa í sömu máltíð.

Ekki er æskilegt að borða oft unnar kjötvörur svo sem bjúgu, pylsur eða fars. Borða má flestar tegundir af brauði en ekki er æskilegt að borða Seytt rúgbrauð. Gott er að borða 1-2 ávexti á dag. Þurrkaðir ávextir (rúsínur, sveskjur o.fl.) í hófi. Nota skal magurt álegg svo sem magran brauðost (11%eða 17% feitan), smurost, kotasælu, magurt kjötálegg (t.d skinka), fiskiálegg (t.d. síld, sardínur, lax), egg (í hófi = 2-3 í viku), mögur kæfa og grænmeti.

Kveðja,
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
matvæla- og næringafræðingur