magasár

hvernig lækninger við magasári.

Sæl/l og takk fyrir fyrirspurnina

Magasár er sár eða vefjalöskun á slímhimnu magans eða skeifugarnarinnar. Flest magasár orsakast af bakteríu er nefnist Helicobacter pylori sem er gram-neikvæð baktería, náskyld Campylobacter-bakteríunni sem veldur svo oft matar-sýkingum. Helicobacter pylori bakterían þrífst vel í magaslímhúðinni og truflar þar efnaskipti hennar sem gerir hana viðkvæmari fyrir áreitum. Aðrar þekktar orsakir eru m.a. ættgengi, áfengisneysla, lyfjaneysla, óholl fæða, óreglulegt mataræði, gallerting, reykingar og stress.

Einkenni magasárs geta verið mörg og mismunandi en þau helstu eru óþægilegur verkur eða sviði frá kviðarholi, eða þrýstingur frá þind sem kemur oftast skömmu eftir máltíð. Einkennin eru stundum árstíðabundin, brjóstsviði, óþægindi við kyngingu, lystarleysi, megurð, uppköst og sortusaur. Ef um blæðandi magasár er að ræða má bæta við einkennum eins og blóðug uppköst, blóðugur saur með sætsúrri lykt, lækkaður blóðþrýstingur, hraður púls, þvöl húð og óstöðug meðvitund.

Til að greina magasár þarf að hitta meltingarsérfræðing sem sem svo ákveður hvort senda þurfi í frekari rannsóknir eins og t.d. blóðprufu, magaspeglun og röntgenmyndatöku.

Til að ákveða meðferð við magasári þarf að vita orsök og alvarleika. Til eru nokkrar tegundir af lyfjum og þarf að finna út hvað hentar hverju tilfelli fyrir sig. Oftast er hægt að lækna magasár með lyfjagjöf en þó kemur það fyrir að það þarf að grípa til skurðaðgerðar.

Læt fylgja með tengil á grein sem fer yfir þau lyf sem notuð eru við magasári.

Gangi þér vel.

thelma Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur