Ég er 63 ára og með er altaf að detta er ekki með svima heldur det ég bara fyrirvaralaust það er farið sjá þó nokkuð á mér þvori ekki að keira bíl
þessu fylgirn hræðilegur hvíði þunglyndi og einmannakend. langar mest burt úr þessi lífi
Sæl/l og takk fyrir fyrirspurnina.
Þetta gæti verið einkenni frá klemmdri taug í mjóbaki en það lýsir sér einmitt oft með máttleysi eða dofa í fótlegg. Í fyrstu atrennu skaltu leita til þíns heimilislæknis en gæti þurft að fara til taugalæknis í kjölfarið. Það er örugglega hægt að hjálpa þér með þetta svo ekki örvænta en fyrst þarf að finna ástæðuna fyrir þessum einkennum.
Gangi þér vel
Guðrún Ólafsdóttir,hjúkrunarfærðingur