við hverju er lyfið ???
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina
Simvastatin er lyf sem notað er til að lækka gildi heildarkólesteróls, „slæms“ kólesteróls (LDL-kólesteróls) og fituefna sem kallast þríglýseríð í blóðinu. Auk þess hækkar Simvastatin gildi „góðs“ kólesteróls (HDL kólesteróls).
Þú getur lesið þér betur til um lyfið HÉR
Gangi þér vel
Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur