Spurning:
Kæra ljósmóðir,
ég er komin 8.vikur á leið. Er í lagi að drekka vatnslosandi te frá herbalife? Ég er með mikinn bjúg.
Svar:
Það er yfirleitt ekki ráðlegt að nota nein vatnslosandi efni á meðgöngu þar sem þau hafa einnig áhrif á vatnsbúskap barnsins og geta skaðað viðkvæm nýru þess. Það sem er áhrifaríkast í baráttunni við bjúginn er hreyfing, sund, vatnsdrykkja, sleppa sykri og óhóflegu salti í mat og hvílast vel e.t.v. með hærra undir fótum. Svo gefa stuðningssokkar oft góða raun ef mikill bjúgur er á fótum.
Kveðja,
Dagný Zoega, ljósmóðir