Spurning:
Góðan dag.
Mig langar að vita hvað ég get gert við verk framan á leggjum. Þegar ég er að labba eða skokka fæ ég alveg ferlegan verk í leggina, þeir verða stífir og ég verð að stoppa. Hvað er til ráð?
Takk fyrir X
Svar:
Komdu sæl.
Mér þykir líklegt að um beinhimnubólgu sé að ræða. Ég vil byrja á því að ráðleggja þér að sleppa því að skokka í bili. Síðan er mjög mikilvægt fyrir þig að vera í góðum íþróttaskóm með dempara og nota jafnvel legghlífar til að halda hita á leggjunum. Einnig er gott að teygja á vöðvunum:
1. framan á leggjum með því að rétta úr ristum
2. kálfavöðvateygjur (kreppa ökkla)
Þegar þú treystir þér til að fara að skokka aftur þá er mikilvægt að byrja að skokka á mjúku undirlagi.
Gangi þér vel;
Hólmfríður H. Sigurðardóttir
sjúkraþjálfari
Styrkur, sjúkraþjálfun
Stangarhyl 7
Rvk.