Vaknaði við sting undir hægra brjósti. Kemur aðallega þegar ég anda djúpt
Er þetta millirifjagigt? Ég er sextug kona
Sæl og takk fyrir fyrrspurnina
Það er illmögulegt að greina slíkt án frekari skoðunar hjá lækni. Ef verkurinn heldur áfram eða þú átt erfitt með andardrátt skaltu endilega ráðfæra þig við lækni.
Ég set HÉR tengil á ágæta umfjöllun um millirifjagigt
Gangi þér vel
Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur