góðan dag getur einhver sagt mér hvort nytt stiningar lyf sé komið á markað sem heldur blóðflæði lengur til limsins.
Sæll og takk fyrir fyrirspurnina.
Þau stinningarlyf sem eru á íslenskum markaði í dag viðhalda ekki blóðflæði til limsins heldur minnka þau niðurbrot á æðavíkkandi efni í getnaðarlimnum.
Þú gætir einnig leitað frekari svara hjá lyfjafræðing apóteka með hvort eitthvað annað sé komið á teikniborð lyfjafyrirtækja.
með kveðju,
Lára Kristín Jónsdóttir
Hjúkrunarfræðingur.