Nóróveira

Niðurgangur af völdum nóróveira er algeng orsök þarmasýkinga út um allan heim. Hún greindist í fyrsta sinn í tengslum við hópsýkingu í grunnskóla í Norwalk, Ohio í Bandaríkjunum árið 1972 og er fyrsta veiran sem tengd var einkennum frá meltingarvegi. Í kjölfar þessa greindust fleiri veirur með svipað útlit og eiginleika, fengu þær nöfn eftir stöðunum þar sem þær fundust (Hawai, Montgomery County, Taunton og Snow Mountain).

Allar veirurnar voru svipaðar í útliti, litlar og hringlaga, við skoðun í rafeindasmásjá . Þær fengu því nafnið „litlu hringlaga veirurnar“ (Small Round Structured Viruses) en ganga nú hérlendis undir nafninu nóróveirur (sem dregið er af eldra heiti þeirra, Norwalk líkar veirur, NLV). Veiran er bráðsmitandi og berst auðveldlega manna á milli. Hópsýkingar á sjúkrahúsum og öðrum meðferðar- og umönnunarstofnunum geta verið alvarlegt vandamál þegar þær koma upp og því er mjög mikilvægt að reyna að hindra útbreiðslu veirunnar innan sjúkrastofnana. Hópsýkingar á skemmtiferðaskipum og hótelum hafa einnig valdið töluverðum usla.

Einkenni

Meðgöngutími sýkingarinnar, þ.e. tími frá smiti til einkenna, er einn til tveir sólarhringar.

Algengustu einkennin eru

  • Ógleði
  • Niðurgangur og/eða uppköst
  • Kviðverkir

Stundum geta komið

  • Beinverkir
  • Höfuðverkur
  • Vægur hiti.

Sjúkdómurinn gengur í langflestum tilfellum yfir á einum til þremur sólarhringum án nokkurrar meðferðar.

Smitleiðir

Smitleiðir eru margar og getur veiran smitast beint manna á milli við snertingu, með því að snrta smitaða fleti, en einnig benda líkur til að smitið geti verið loftborið. Uppköst eru bráðsmitandi og eru dæmi þess að veiran hafi borist í loftinu til fólks í nánasta umhverfi. Önnur algeng smitleið er með fæðu og vatni og er mengun matvæla frá sýktum einstaklingum algeng smitleið. Einnig er smit með ostrum vel þekkt, en smitið berst í ostrurnar með nóróveirumenguðu vatni.

Meðferð

Sýklalyfjagjöf kemur ekki að gagni. Verkjalyf (paracetamol) geta dregið úr einkennum, einkum ef sýkinni fylgja beinverkir og höfuðverkur. Mikilvægt er að drekka vel á meðan á veikindum stendur því að mikið vökvatap verður yfireitt í svona veikindum.
Einkenni vökvaskorts eru fyrst og fremst þorsti og þá er mikilvægt að svala honum. Við mikinn vökvaskort kemur svimi (oft við að standa upp), þreyta, höfuðverkur, munnþurrkur, augnþurrkur, dökkt þvag og lítill þvagútskilnaður.
Í einstaka tilfellum reynist nauðsynlegt að leggja viðkomandi inn á sjúkrahús til vökvagjafar í æð, en þá er vökvaskortur orðinn mjög mikill
Best er að drekka vatn og safa. Til að koma í veg fyrir mikinn vökva- og saltskorti er gott að taka Resorb eða eitthvað álíka. Það eru freyðtöflur sem leystar eru upp í vatni sem innihalda sölt og fást í apóteki án lyfseðils. Þau henta fyrir fullorðna og börn eldri en 3ja ára.
Ekki er mælt með því að drekka sykraða drykki. Sykraðir drykkir geta aukið niðurganginn.

Fylgikvillar

Sýkingin getur valdið verri einkennum hjá einstaklingum sem eru veikir fyrir.

Forvarnir

Einstaklingar með nóróveirusýkingu eru smitandi meðan á veikindum stendur en eru í flestum tilfellum lausir við smit tveimur til þremur sólarhringum eftir að einkenni eru horfin.  Þó eru dæmi um smitandi einstaklinga allt að 10 dögum eftir bata.

Gæta skal varúðar við þegar hreinsað er eftir einstaklinga með NLV- sýkingu þar sem uppköst og niðurgangur eru bráðsmitandi.

Á sjúkrastofnunum ber að einangra viðkomandi eftir bestu getu meðan á veikindum stendur og í tvo sólarhringa eftir að einkenni eru horfin. Starfsfólki á sjúkrastofnunum ber að vera heima í tvo sólarhringa eftir að það hefur náð sér áður en það kemur aftur til vinnu.

Einstaklingar með einkenni um nóróveirusýkingu skulu ekki elda eða framreiða mat fyrir aðra.

Góður handþvottur er ávallt mikilvægur og árangursríkasta leiðin til að koma í veg fyrir smit. Sérstaklega er mikilvægt að þvo hendur eftir klósettferðir eða bleyjuskipti, fyrir matmálstíma, áður en matur er meðhöndlaður, áður en tekin/gefin eru lyf.

Veiran getur verið í uppköstunum eða hægðum áður en þú finnur einkennin og allt upp í 2 vikum eftir að þú hefur náð þér af veirunni. Því er handþvottur mikilvægur yfir þennan tíma. Einnig er góð hugmynd að nota handspritt eftir handþvott, en ekki í staðinn fyrir handþvott.

Ekki er hægt að bólusetja gegn nóróveirusýkingum.

Höfundur greinar