Er í lagi að taka þessi lyf með blóðþrýstings lyfjum og er sama hvaða tegund af blóðþrýstings lyf eru notuð
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina
Afar mikilvægt er að ræða vel við lækni þegar verið er að ákveða lyfjagjöf og upplýsa um hvaða lyf og fæðubótarefni verið er að taka fyrir og mögulega víxlverkun þeirra.
Avena Sativa er flokkað sem fæðubótarefni og í fljótu bragði ekkert sem bendir til þess ekki megi nota það með öðrum lyfjum. Sefitude er flokkað sem jurtalyf og samkvæmt Lyfja.is eru engar milliverkanir þekktar.
Það ætti því að vera óhætt að nota þessi efni með öðrum lyfjum en ég ítreka að best er að spyrja sinn meðhöndlandi lækni.
Gangi þér vel
Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur