Brjóstaminnkun

Spurning:

Komið þið sæl.

Ég hef mikinn áhuga á því að fara í brjóstaminnkun en veit ekki hvert ég á að snúa mér.

Eru einhverjar reglur um hver ætti að fara í brjóstaminnkun og hver ekki? Er tryggingarstofnun hætt að borga þessa aðgerð, þó þetta sé orðið mikið vandamál fyrir manneskjuna? Hvað kostar annars slík aðgerð ef maður borgar úr eigin vasa?

Með fyrirfram þökkum.

Svar:

Komdu sæl. Þakka þér fyrirspurnina.

Varðandi brjóstaminnkun þá ráðlegg ég þér að leita til sérfræðings í lýtalækningum. Panta viðtalstíma hjá einum af þeim 7 sem starfrækja stofur hér á landi. Í viðtali hjá lækninum gefur hann þér upp allar upplýsingar um aðgerðina sjálfa, undirbúning fyrir hana og eftirmeðferð. Einnig hugsanlegar aukaverkanir, kostnað o.fl. Þér vil ég að segja að hverri aðgerð fylgir ákveðin áhætta. Við erum einstaklingsbundin og svörum meðferð misjafnlega. Sumir fá aukaverkanir s.s. ljót, upphleypt ör á meðan aðrir gróa vel þar sem lítið sést hvað eða hvort eitthvað var gert. Hafir þú fengið ör skaltu líta á það og skoða hvernig það hefur gróið. Varðandi æskilegan þyngdarstuðul þá er það rétt að feitum konum er ráðlagt að létta sig eitthvað. Þetta allt skaltu ræða um við lækninn áður en þú ákveður að gangast undir aðgerð.

Bestu kveðjur, Hrönn Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri Laserlækningu ehf.