Crestor blóðfituminnkandi lyf

Veldur Crestor munnþurrki ?

Sæl/sæll og takk fyrir fyrirspurnina

Á fylgiseðli með lyfinu er hægt að lesa sér til um helstu aukaverkanir sem geta fylgt töku lyfsins Crestor. Munnþurrkur er ekki sérstaklega talinn upp þar en ýmis önnur einnkenni frá munni og meltingarfærum.

Ef þú ert að taka fleiri lyf geta þau einnig haft ýmsar milliverkanir.

Ef munnþurrkurinn er að valda þér  verulegum vandræðum þá skaltu ráðfæra þig við lækni.

Gangi þér vel

Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur