Ég hef í 2 daga séð skugga fara fyrir v. auga.

Þetta lýsti sér fyrst sem speglun í gleraugunum og ég þreyf þau, en svo var ekki. Þetta fylgir hreifingu augans. Það er engin verkur eða önnur einkenni.

Sæl/l og takk fyrir fyrirspurnina

 

Blettir sem við sjáum stundum renna yfir augun eru skuggar af hvítum blóðkornum á leið um æðar í nethimnunni. Hvítu blóðkornin drekka ekki í sig ljós á sama hátt og þau rauðu og verða þess vegna sýnileg sem eins konar göt í streymi rauðu blóðkornanna. Fyrirbrigðið myndast í fíngerðum æðum sem liggja rétt þar hjá sem sjónin er skörpust. Stundum má meira að segja sjá þessa bletti hreyfast í takt við hjartsláttinn. Þeir gagnsæju blettir sem flest fólk kannast við tilheyra svonefndum innanauga-fyrirbrigðum en þau eiga það sameiginlegt að einhver hlutur í auganu sjálfu varpar skugga á nethimnuna. Annað slíkt fyrirbrigði eru svartir deplar sem stafa af óreglulegu ástandi í glæru augans. Hafi þetta áhrif á sjónina eða breytist eitthvað er ráðlagt að hitta augnlækni. Læt fylgja með link hér  til frekari upplýsinga.

Gangi þér/ykkur vel.

Thelma Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur