Mig vantar eitthvað til þess að ég sofi betur sem hefur ekki áhrif á virkni diane mite pillunnar.
Sæl og takk fyrir fyrirspurnina.
Það er ekki skráðar neinar milliverkanir á Valerina rótinni, sem er í Sefitude, og Diane Mite svo þér ætti að vera óhætt að nota lyfin samtímis. Ég vil samt benda þér á að tala við þinn kvensjúkdómalækni eða þann lækni sem skrifar út hormónapilluna fyrir þig og bera málið undir hann.
Gangi þér vel.
Guðrún Ólafsdóttir
Hjúkrunarfræðingur