Mikill hrúður að morgni á báðum augnlokum, mjög óþægilegt, hvarmar rauðir,
og þreytutilfinning.
Er einhver augnlæknir sem getur meðhöndlað þetta og hefur tíma aflögu ?
Hrúður á báðum augnlokum að morgni, rauðir hvarmar, svíður.
? Er einhver augnlæknir – augnlæknar, sem meðhöndla slíkt
og hafa tíma aflögu.
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina.
Ég myndi fyrst líta til heimilislæknis og kanna hvort hann geti aðstoðað. Hann gæti þá einnig ráðlagt frekari rannsóknir/meðferð hjá augnlækni eða húðsjúkdómafræðing telji hann þörf á því.
Gangi þér vel,
Lára Kristín Jónsdóttir
Hjúkrunarfræðingur.