Prednisolon EQL Hvers konar lyf er þetta ?
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina
Á fylgiseðli lyfsins kemur þetta fram:
Prednisolon EQL Pharma er barksteri sem kemur í veg fyrir og bælir ofnæmissjúkdóma, bólgu- og gigtarsjúkdóma.
Lyfið er notað þegar þörf er á að bæla viðbrögð líkamans, eins og bólgusvar við iktsýki. Önnur dæmi sem má nefna eru bandvefssjúkdómur (SLE), bólga í æðaveggjum, breytingar á bandvef, astmi, alvarleg bólga í ristli (sáraristilbólga), ákveðnir blóðsjúkdómar, alvarlegir ofnæmiskvillar og meðferð við æxlum.
þú getur lesið fylgiseðilinn HÉR
Gangi þér vel
Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur