Hvaða lyf eru til við kláðamaur.
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina.
Meðferð við kláðamaur felst í að bera lyf/krem á húðina, Tenutex, en það fæst í lausasölu í apótekum. Hafir þú grun um kláðamaurssmit er ráðlegt að leita til heilsugæslunnar eða húðsjúkdómalæknis til að fá greiningu.
með kveðju,
Berglind Ómarsdóttir
Hjúkrunarfræðingur