Sæl
Er með eina 6 ára sem er mjög aktif , hún er alltaf með marbletti um allan líkamann ,baki mjöðmum , fótum , hvað er til ráða .
Takk fyrir
Sæl og takk fyrir fyrirspurnina
Það er ekki óeðlilegt að hún fái marbletti ef hún er stöðugt að reka sig í og detta en ef þú hefur ekki skýringu á marblettunum eða þeir eru óeðlilega miklir skaltu endilega ráðfæra þig við lækni.
Gangi ykkur vel
Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur