Náladofi

Af hverju stafar náladofi?
Náladofi í vinstri handlegg eftir mikla verki af völdum millirifjagigtar.

Sæl og takk fyrir fyrirspurnina

Það er ótrúlega margt og misalvarlegt sem getur orsakað náladofa. Þrýstingurinn getur verið t.d. út frá vöðvabólgu eða afleiðing áverka. En þetta getur komið þegar þrýstingur myndast á taugar, t.d. ef þú hefur sofið á hendinni um nóttina eða sofið með hendur upp fyrir höfuð. Einnig getur verið um að ræða einhverja truflun á taugastarfsemi vegna hinna ýmsu taugasjúkdóma. Ef þetta er að koma án eðlilegrar útskýringar, ef dofinn er viðvarandi og veldur því að þú getir ekki notað hendina, ef þetta gengur ekki tilbaka eða ef þetta er að gerast endurtekið, þá mæli ég með að þú leitir til heimilislæknis. Sá læknir metur það síðan hvort þörf sé á frekari skoðun hjá sérfræðilækni.

Gangi þér vel,

Særún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur