Sæll er til eitthvað annað en hin hefðbundnu svitalykta-eyði
þar sem sem ég fæ ofnæmis-viðbrögð af öllum svitalykta eyðum (kláði undir höndum)
Bkv
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina.
Mér dettur ekkert í hug í fljótu bragði, en hjá Heilsuhúsinu eru til fjölmargar tegundir af svitalyktareyðum sem eru álfríir og án parabena, lífrænir og náttúrulegir.
Prufaðu að kíkja þangað og gá hvort þau geti ekki hjálpað þér þar.
Gangi þér vel
Með kveðju,
Bylgja Dís Birkisdóttir
Hjúkrunarfræðingur