komið sæl.
getur pyronese disease lagst á fleiri staði en limin
eins og hendur og fætur sem dæmi
Sæll og takk fyrir fyrirspurnina.
Peyronie’s disease er sértækur sjúkdómur í getnaðarlim sem kemur í kjölfar áverka og örmyndunar í bandvef limsins. Því á peyronie’s disease eingöngu við sjúkdóm sem kemur fram í getnaðarlim.
Með kveðju
Guðrún Ólafsdóttir
Hjúkrunarfræðingur