Taugagigt?

Spurning:
Var að leita að sjúkdóm sem heitir taugagigt en fann ekkert. Er búin að senda inn fyrirspurn um þennan sjúkdóm fyrir nokkru síðan. Er möguleiki á að það sé nafnaruglingur í gangi og að sjúkdómurinn sem ég á við heiti eithvað annað ?

Svar:
Orðið taugagigt er sjaldan notað í dag og er ekki viðurkennt heiti á sjúkdómi eða sjúkdómseinkennum. Hér áður fyrr var þetta oftast notað fyrir einkenni sem koma vegna vöðvabólgu. Algengasta notkunin var vegna vöðvabólgu í hálsi og herðum. Bólgan er þá það mikil að vöðvarnir þrýsta á taugarnar og getur það valdið höfuðverk (oft kallaður spennuhöfuðverkur) og jafnvel doða. Við vitum ekki í hvaða samhengi þetta orð hefur verið notað við þig, en fáðu nánari skýringu hjá þeim sem notaði þetta orð.

Kveðja Gigtarlína Gigtarfélags Íslands