Þegar eg fer að sofa þa vakna eg með með dofa i hondum og stingi i puttunum.
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina
Líklega er skýringin á því að þú vaknir með dofa í útlimum en ekki úthvíld/ur tengd svefninum þínum eða svefnvanda.
Kæfisvefn getur mögulega verið undirliggjandi ástæða. Þú getur lesið þér betur til um kæfisvefn HÉR
Ég hvet þig til þess að heyra í heilsugæslulækni og fá nánari skoðun og aðstoð með þetta vandamál
Gangi þér vel
Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur