Góðan dag ég er 53 ára gamall kall en það sem er hrjáir mig eru agalegir verkir í sérstaklega í vinstri fætti fyrir aftan tær og ofan við táberg og stundum er það svo vont að ég get vart gengið, alveg djöfulegt. Hvar get ég leita upplýsinga eða helst lækninga ? Ég gett vart labbað og oft passa ég ekki í skóna mína, kemst hreinlega ekki í þá.
Sæll og takk fyrir fyrirspurnina.
Það geta verið ýmsar ástæður fyrir verkjum eins og þú ert að lýsa. Ef þú stendur allan daginn við vinnu geta komið fram álagseinkenni í fótum og þarf þá sérstaklega að vanda að vera í góðum skóm með þykkum og mjúkum sólum og mörgum reynist vel að hafa innlegg í skónum til viðbótar.
Einkenni geta líka merki um gigt eða aðra bólgusjúkdóma og þarf þá meðhöndlunar hjá lækni.
Ég ráðlegg þér að panta tíma hjá þínum heimilislækni á heilsugæslustöðinni þinni, sem skoðar þig og metur ástæður einkenna.
Gangi þér vel
Guðrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur