Sæl(l)
Ég hef verið með mikinn vindgang undanfarnar tvær vikur, sem er allan daginn og verst á kvöldin, og niðurgang sem hefur verið blóðlitaður en blóðið hefur reyndar eiginlega alveg horfið á síðustu 3-4 dögum. Hvað getur þetta mögulega verið og hvað er til ráða?
Með fyrirfram þökk
Sæl/l og takk fyrir fyrirspurnina.
Þetta gæti hafa verið magavírusinn sem hefur herjað á Landann sl 3 vikur. Það er ekki óalgengt að blæði aðeins eða komi smit í pappír við langvarandi niðurgang en ef blæðing er meira en sem svarar því skaltu leita til læknis. Einnig ef einkenni halda áfram og sérstaklega ef blæðir með og þá mun læknir skoða þig með tillit til heilsufarssögu og hugsanlegra ítarlegri rannsókna. Leitaði einnig til læknis ef svipuð einkenni með blæðingu kom aftur. Það er óliklegt að fæðuóþol lýsi sér með þessum einkennum en geta verið bólgur í ristli eða bakteríusýkinga sem þarf þá að meðhöndla.
Gangið þér vel
Með kveðju
Guðrún Ólafsdóttir
Hjúkrunarfræðingur