Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg líðan og gerir einstaklingi kleift að lifa innihaldsríku lífi (skilgreining Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-WHO). Andlegir, félagslegir og líkamlegir þættir heilsunnar hafa áhrif á hvorn annan. Góð andleg líðan er grunnur þess að við finnum jafnvægi í daglegu lífi. Mikilvægt er að rækta og efla andlega heilsu jafnt á við þá líkamlegu og félagslegu. Góð geðheilsa/andleg heilsa er að vera sáttur við sjálfan sig og umhverfi sitt, upplifa jafnvægi, öryggi, ánægju í lífi og starfi og hafa getu til að aðlagast breytilegum aðstæðum. Fólk á öllum aldri, úr hvaða fjölskyldu sem er, getur þurft að glíma við slæma geðheilsu/andlega heilsu, óháð menntun, kynþætti, kynhneigð, starfi, fjárhag eða trúarbrögðum.
Vinnan er stór hluti af lífi flestra einstaklinga og því mikilvægt að huga að andlegri líðan á vinnustaðnum. Vellíðan í vinnu hefur jákvæð áhrif á starfsánægju og það hvernig okkur gengur að takast á við þau verkefni sem liggja fyrir. Þegar okkur líður vel og við erum í góðu jafnvægi erum við afkastameiri í vinnu, okkur gengur betur í samskiptum við samstarfsfólk og við höfum meira til málanna að leggja í vinnuhópum.
Hér eftirfarandi eru geðorðin 10 sem geta hjálpað til við að halda góðri geðheilsu/andlegri heilsu.
- Hugsaðu jákvætt, það er léttara.
- Hlúðu að því sem þér þykir vænt um.
- Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir.
- Lærðu af mistökum þínum.
- Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina.
- Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
- Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig.
- Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.
- Finndu og ræktaðu hæfileika þína.
- Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast.
Höfundur greinar
Auður Berglind Ómarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Allar færslur höfundar