Skólabyrjun, nokkur ráð varðandi skólatöskur.

Skólarnir fara að byrja og margir farnir að huga að skólatöskum og öðrum fylgihlutum. Að mörgu er að huga þegar ný taska er keypt en einnig mikilvægt að vera meðvitaður um hvernig best er að nota skólatöskurnar. Íslenskir krakkar bera skólatöskurnar sínar 180 daga á ári í að minnsta kosti 10 ár. Niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verið hér á landi hafa sýnt fram á tengsl á milli stoðkerfisvanda grunnskólanema við notkun þungra skólataska.

Byrjum strax að huga að vinnuumhverfi barnanna og hjálpum þeim að læra að nota og bera skólatöskurnar sínar rétt og vel. Nauðsynlegt er að vera með rétta stærð af tösku, stilla hana að þeim sem notar hana og pakka rétt í töskuna.

Það skiptir ekki máli hversu góðar skólatöskur við kaupum handa börnunum okkar ef að þau nýta sér ekki stillimöguleika eða kunna ekki að bera töskurnar sínar þannig að þær valdi ekki álagi. Alveg eins og það er alveg sama hversu góðan skrifstofustól við kaupum ef við sitjum alltaf eins í honum og breytum aldrei um stellingu.

Þegar ný taska er keypt þarf í fyrsta lagi að velja tösku sem passar stærð barnsins. Taskan má ekki vera breiðari en svo að barnið geti sveiflað höndum frjálslega. Taskan á að ná frá axlarlínu og ekki meira en 10cm niður fyrir mitti. Stillanlegar og vel fóðraðar axlarólar og mittisól eru þættir sem skipta máli. Einnig er gott ef taskan er með fleiri en einu hólfi þannig að auðvelt sé að raða vel í töskuna.

Mikilvægt er að gera sér grein fyrir hvernig best er að nota og bera skólatöskurnar, en einnig hvernig best er að raða í þær. Með þessu aukum við meðvitund barna um eigið vinnuumhverfi og vitund þeirra um mikilvægi þess að bera ábyrgð á sjálfum sér og sínum líkama.

Oft hafa unglingar aðgang að skápum og ef þeir eru rétt notaðir má minnka töluvert burð á milli skóla og heimilis. Gott skipulag á námsbókum í skápunum þannig að einungis það sem á að nota fari í töskuna. Foreldrar og aðstandendur þurfa að sjálfsögðu að styðja og styrkja í þessu sem öðru og því læt ég fylgja hér smá bút úr leiðbeiningum iðjuþjálfa (skólatöskudagar IÞÍ).

10 góð ráð til að létta byrðina:

1.     Látið barnið aldrei bera meira en 15% af eigin líkamsþyngd. Þetta þýðir að barn sem er 50 kg ætti ekki að bera þyngri tösku en 7,5 kg..

2.     Setjið þyngstu hlutina sem næst baki barnsins og raðið vel í töskuna þannig að bækurnar séu síður á ferðinni.

3.     Nota alltaf báðar axlarólarnar. EF aðeins önnur axlarólin er notuð getur barnið hallað til hliðar og þannig skekkt hrygginn og valdið þannig verkjum eða óþægindum.

4.     Veljið bakpoka með vel fóðruðum axlarólum. Of mikill þrýstingur á axlir og háls getur valdið óþægindum og dofa.

5.     Veljið rétta stærð af tösku fyrir barnið jafnhliða hversu mikið pláss skóladótið þarf.

6.     Stillið axlarólarnar þannig að taskan passi vel að baki barnsins. Taskan ætti aldrei að ná lengra en 10 cm fyrir neðan mitti.

7.     Muna að nota mittisólina, ef að hún er á skólatöskunni, en hún hjálpar við að dreifa þyngd töskunnar.

8.     Skoðið hvað barnið er að bera í töskunni á milli skóla og heimilis. Verið viss um að það  sé einungis það sem það þarf að nota þann daginn.

9.     Ef skólataskan er of þung, íhugið að nota tösku á hjólum ef barnið samþykkir.

10.  Þá daga sem skólataskan er yfirhlaðin getur barnið borið bækur eða hluti í fanginu – það minnkar álagið á bakið.

Höfundur greinar